laugardagur

klukkan er ellefu,en þá ætlaði ég að slökkva á tölvunni og klæða mig... hmm ... er að fara með einkason minn á boxæfingu kl 12 ... hann er nýbyrjaður í boxi og fílar það í tætlur ... vona að hann haldist við efnið ... fórum í kringluna í gær og náðum í gleraugun hans, rosa fínn með þau og er alsæll, sér í gegnum holt og hæðir, getur núna séð á sjónvarpið og lesið textann og allt, nýtt líf fyrir hann þessa elsku ... skólinn hjá mér byrjaði í fyrradag, spennandi fög, MIKIÐ efni og gaman gaman ... við gömlu hjónin byrjuðum að horfa á 24 í gærkvöldi, ég er búin að vera með 1.seríuna á dvd frá Unni og Gunna í tæpt ár held ég, þau sendu mig með hana heim á sínum tíma og skipuðu mér að horfa á hana, en þá var ekki hægt að spila það í play station tvö svo hún hefur bara verið uppi í hillu, Gummi rak augun í þetta í gær þegar ég var að snúa öllu við hérna í leit að strætókortinu mínu (fann það ekki samt) og hann fór allur á flug þannig að við hentum fyrsta disk í tölvuna hans í gærkvöldi ... það var ekki aftur snúið, ég orðin geðv.spennt, horfðum samt "bara" á fyrsta diskinn (fjóra þætti) því ég get ekkert vakað á nóttunni ... er bara að bíða eftir að klára verkefni dagsins svo ég geti lagst í að glápa á næsta disk ... Jack Bauer er minn maður ...

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

ég hef alveg skoðun...

Höfundur

Elín Sigríður Grétarsdóttir
Elín Sigríður Grétarsdóttir

er frekar til friðs en hitt

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...avel_894003
  • ...0242
  • ...dsc00286
  • ...026
  • ...012_821512

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband