vantar enn

... allt í læ með ennið á mér sossum, en ég þarf að berja á ennið á lyklaborðinu til að fá eitt stykki ... en ég fæ nýtt lyklaborð í dag ... gott að eiga kærasta sem vinnur í tölvubúð ;)  talandi um kærasta ... það eru einhverjar nokkrar hræður sem lesa bloggið mitt ... verið velkomin ... og mér er alveg slétt sama hverjir lesa, hvort það eru vinir og vanda eða fólk sem ég þekki ekki neitt ... nema hvað svo fer ég alveg í kleinu þegar Gummi les það ... maðurinn sem ég treysti fyrir öllu og þar á meðal sjálfri mér ... svona er ég nú skrítin ... er í skólanum, við Adda ætlum að fara að læra fyrir verklegt í lífeðlisfræði ég fattaði í gær að það tengist EÐLISfræði sem ég er ekki svo góð í ... er hægt að vera meiri ljóska ???

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Dóra

heyrðu ég er svona líka með bloggið og kærastann. Ég hef ekki sagt honum slóðina og boðið honum að skoða, en hann hefur alveg setið við hliðina á mér ef ég er að skrifa og veit þá eflaust slóðina en ég veit ekki hvort hann lesi og langar ekki að vita það. Við eru so grítin............

Helga Dóra, 7.2.2008 kl. 14:55

2 Smámynd: Hafrún Kr.

Vá hvað ég skil ykkur. Ég roðna niður í rass þegar ég heyri að maðurinn minn hafi lesið bloggið mitt. Samt er ég gift manninum og á barn með honum og búin að deila öllu mínu með honum en svona er maður klikk í hausnum hehe.

Hafrún Kr., 7.2.2008 kl. 15:00

3 identicon

Hæ skvís ...

ég les sko bloggið þitt og finnst það æði :)

Gangi þer vel með líf"eðlis"fræðina :)

ég get lítið aðstoðað þig með hana .. því miður :)

Nina (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 20:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

ég hef alveg skoðun...

Höfundur

Elín Sigríður Grétarsdóttir
Elín Sigríður Grétarsdóttir

er frekar til friðs en hitt

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...avel_894003
  • ...0242
  • ...dsc00286
  • ...026
  • ...012_821512

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband