13.2.2008 | 10:07
bara í sólbaði á daginn
hroki minn og dómharka koma í veg fyrir það að ég sé að nýta mér það sem ég á að vera að læra í þessum tíma ... en þá nota ég bara tímann til að skrifa hér um það sem gengur á í dagsins önn ... heimalærdómur sonar míns hefur verið bitbein á heimilinu í nokkra daga, það liggur við að það séu handalögmál þegar stærðfræðiheftið "Mörgæsir" er annars vegar ... það hefur verið grátið, snökt og ekkasog hafa verið hávær ... ég slúttaði þessu með því að fara á fund í gærkvöldi og lét Guðmund um málið ... ég er að hugsa um að flytja bara í Árbæinn og láta þá vinina um heimilishaldið í Vesturberginu, fá smá húsmæðraorlof ... ég sótti um vinnu á lsh í gær, strax búin að fá tvö símtöl, verð ekki í vandræðum með að fá vinnu, langar að vera frekar á hringbraut, það er minna mál að fara þangað í strætó heldur en í fossvoginn, þó að það sé lengra ... alltaf sami stemmarinn í strætó ... reyndar er mér að detta í hug í þessum töluðum að auðvitað get ég hjólað í fossvoginn (glætan ég eigi eftir að nenna því ...) eða tekið strætó hluta leiðarinnar og hjólað rest ... bla bla hvað er ég að bulla, eigandi kærasta sem á þennan fína jeppling ??? svo er ekkert víst að ég muni verða á morgunvöktum, kannski verð ég bara í sólbaði á daginn og vinn á kvöldin
ég hugsa að það verði ekkert vandamál að fá að ráða soltið sínum vöktum ... þetta er samt ekkert sem þarf að taka ákvörðun um í dag ... nægur tími ... ég ætla ekki að taka bara það fyrsta sem býðst ... ætla að velja vandlega, hvar ég fæ bestu reynsluna o.s.frv. annars gengur allt sinn vanagang, ástin blómstrar, við ætlum að kaupa okkur fleiri kodda, þarf aðeins að hækka hægindastuðulinn við 24-áhorf ... svo erum við búin að leita að náttborðslömpum um allan bæ, þeir eru ýmist rusl, rándýrir eða ljótir ... endar örugglega með því að við fáum okkur lampa á vegginn, sem er jákvætt að því leiti að hægt er að safna meira af nauðsynlegu dóti á náttborðið ... áhersla á nauðsynlegu ... jæja best að leita að slúðri á netinu, ég er að drepast í þessum &%$@#! fyrirlestri ... á að ganga frá manni ???

Um bloggið
ég hef alveg skoðun...
Tenglar
Það er til lausn
Þetta þarf ekki að vera svona erfitt
Bloggvinir
-
addahelga
-
helgadora
-
marilyn
-
brussan
-
bobbaff
-
hafrunkr
-
huldalind
-
marylinda
-
sykurmolinn
-
bleiksteik
-
marias
-
thoradora
-
teygjustokk
-
supermamma
-
drottningar
-
jonaa
-
hugarfluga
-
ellasprella
-
baldvinj
-
kjarninn
-
marra
-
asgerdurjoh
-
skrudur
-
bellastar
-
melabraut
-
tibet
-
griman
-
ingabesta
-
siggadrofn
-
blattafram
-
sigrunhuld
-
siggiholmar
-
imp
-
olofdebont
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.