15.5.2008 | 21:43
faaalllllinnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnn
með fjóra komma fimm ... klúðraði lífeðlisfræðinni big time ... einkunnin kom í dag ... ég var ógeðslega spæld ... tók allan hringinn á þetta ... fyrst var mér alveg sama, svo var ég ógeðslega heimsk, svo ætlaði ég að hætta í skólanum, svo ætlaði ég að massa upptökuprófið sem er í ágúst og þegar ég var búin að ákveða það, sá ég í því frábært tækifæri til að læra þetta efni alveg upp á tíu og vera ógeðslega góð í lífeðlisfræði eftir sumarið ... það eina sem virkar fyrir mig er heiðarleiki, og bara svona undir fjögur augu ætla ég að trúa þér fyrir því að það er engum að kenna nema sjálfri mér að ég hafi ekki náð þessu, ég lærði ekki nóg, jú ég sat fyrirlestra, en ég opnaði ekki bók fyrr en þremur vikum fyrir próf og það var of seint ... ég á eftir að fá þrjár einkunnir, við skulum spyrja að leikslokum og ekki fullyrða neitt ... en talandi um heiðarleika, þá er heiðarleiki ekki bara að segja satt þegar maður er spurður að einhverju ... heiðarleiki er að segja sjálfum sér satt, heiðarleiki er að gera ekkert sem er ólöglegt, heiðarleiki er að segja það sem maður meinar og meina það sem maður segir ... ekki meira í bili ... nema að tölvan mín er í viðgerð og ég er að nota heimilistölvuna sem er með skjá á stærð við bíótjald og ekki nóg með ónýta tölvu heldur splundraðist ofnhurðin yfir allt eldhúsið áðan, sjitt hvað mér brá ... veriði góð ... esg
Um bloggið
ég hef alveg skoðun...
Tenglar
Það er til lausn
Þetta þarf ekki að vera svona erfitt
Bloggvinir
-
addahelga
-
helgadora
-
marilyn
-
brussan
-
bobbaff
-
hafrunkr
-
huldalind
-
marylinda
-
sykurmolinn
-
bleiksteik
-
marias
-
thoradora
-
teygjustokk
-
supermamma
-
drottningar
-
jonaa
-
hugarfluga
-
ellasprella
-
baldvinj
-
kjarninn
-
marra
-
asgerdurjoh
-
skrudur
-
bellastar
-
melabraut
-
tibet
-
griman
-
ingabesta
-
siggadrofn
-
blattafram
-
sigrunhuld
-
siggiholmar
-
imp
-
olofdebont
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Villtu heiðarleika ?
Ómar Ingi, 15.5.2008 kl. 22:00
Hvað varstu eiginlega að elda
Kristborg Ingibergsdóttir, 15.5.2008 kl. 22:05
Knús á þig
Sigurður Hólmar Karlsson, 15.5.2008 kl. 22:07
það voru gs pizzur handa mér og einkasyni mínum :( svo asnaðist ég til að opna ofninn (innra glerið fór ekki sko) og það fóru glerbrot á matinn okkar ... glatað, allt í ruslið ... já takk, heiðarleika, ef þú hefur eitthvað að segja :D
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 15.5.2008 kl. 22:10
Jesús, eins gott að þið fenguð ekki glerbrotin í ykkur. Á ég að segja þér frá Bold og hressa þig við?
Sykurmolinn, 15.5.2008 kl. 23:27
æj krúttan mín... massar þetta í sumar því þú getur allt.
Marilyn, 15.5.2008 kl. 23:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.