venjuleg

... takk HD ... NOT !!! langar bara ekki rassgat að vera venjuleg, enda verð ég það aldrei ... er að fikra mig í áttina að því að lifa venjulegu lífi ... en ætla áfram að vera ég ... með öllu sem því fylgir ... í dag er ég þakklát, þakklát fyrir heilsuna mína, þakklát fyrir að geta tekið þátt í lífinu ... ég fór í partí í gær í vinnunni hjá húsbandinu, óskaplega skemmtilegt, góður matur (leit amk þannig út, ég þurfti að borða heima því ég var að falla á tíma), gott vín (allavega voru flestir duglegir að drekka það), skemmtilegt fólk og krúttað að horfa á elskuna mína í glasi, hann varð eftir þegar ég fór heim að sofa, kom svo eitthvað um hálf eitt og fór að brölta upp í með köttinn og óttalegt vesen á honum, ég þóttist bara vera sofandi og allir sáttir ... mjög skrítið að upplifa að vera ekki í neinum ótta eða stjórnsemi gagnvart drykkju annarra, þó það hafi sannarlega örlað á því þegar hann hringdi rétt fyrir sex, var þá búinn að vera í óvissuferð frá hádegi og búinn að drekka TVO BJÓRA ... þetta er auðvitað misnotkun á áfengi og algjörlega borðleggjandi augljóst að maðurinn á við vandamál að stríða, ég hefði pottþétt verið sofnuð í rútunni fyrir kaffi ... ég sendi líka sponsornum mínum sms til að kvarta yfir drykkjuhegðun hans ... en núna ætla ég að fleygja mér stundarkorn áður en ég fer að grilla silung ... ást&friður

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Dóra

Veit þú verður aldrei venjuleg, varð bara að dríða þér doldið..... Heyrðu er að kveikja hvað klukkan er, borða hádegismat og svo er júró...... ÁFRAM ÍSLAND

Helga Dóra, 24.5.2008 kl. 17:19

2 Smámynd: Ómar Ingi

2 Bjóra drekkur maður nú bara á meðan marr svefur ?

Ómar Ingi, 24.5.2008 kl. 17:42

3 Smámynd: Hafrún Kr.

hmm hvernig skilgreinir maður venjulegur?

Ég skilgreini venjulegt fólk sem fólk eins og ég því ég er eina sem ég þekki en normal verð ég aldrei því ég segi að það sé bara takki á fjarstýringu. 

Hafrún Kr., 24.5.2008 kl. 17:52

4 Smámynd: Kristborg Ingibergsdóttir

Þú ert náttúrulega bara frábær eins og þú ert :o)

Kristborg Ingibergsdóttir, 24.5.2008 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

ég hef alveg skoðun...

Höfundur

Elín Sigríður Grétarsdóttir
Elín Sigríður Grétarsdóttir

er frekar til friðs en hitt

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...avel_894003
  • ...0242
  • ...dsc00286
  • ...026
  • ...012_821512

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband