23.10.2008 | 17:39
Stubbur tveimur kúlum fátækari
Stubbalingur mætti á dýraspítalann uppúr átta í morgun í búrinu sínu, þar tók læknir við honum og hann grét óskaplega (Stubbur sko, læknirinn grét ekki neitt) og svo bara svæfði hún hann og gerði snipp snipp og kúlurnar farnar ... við sóttum hann svo um þrjúleytið og hann var ósköp vankaður þessi ræfill (Stubbur sko, það var allt í læ með lækninn) og þegar við komum heim opnuðum við búrið og hann fór strax út úr því eitthvað að reyna að athafna sig en það gekk frekar illa framanaf ... hann var svo mikið ruglaður eftir svæfinguna að hann bara datt á rassinn og hljóp á allt. Hann borðaði þessi ósköp, prumpaði svo og sefur núna uppi í glugga ... við erum auðvitað sömu kvikindin hér á heimilinu að við grétum úr hlátri yfir bröltinu í okkur en hann var of ruglaður til að fatta það ... ég sé á athugasemdum við fyrr færslu að það er kominn heilmikill spenningur að vita kynið á mallakútnum mínum, best að plebba bara upp skoðanakönnun ... hún birtist hér til hliðar ...
Um bloggið
ég hef alveg skoðun...
Tenglar
Það er til lausn
Þetta þarf ekki að vera svona erfitt
Bloggvinir
- addahelga
- helgadora
- marilyn
- brussan
- bobbaff
- hafrunkr
- huldalind
- marylinda
- sykurmolinn
- bleiksteik
- marias
- thoradora
- teygjustokk
- supermamma
- drottningar
- jonaa
- hugarfluga
- ellasprella
- baldvinj
- kjarninn
- marra
- asgerdurjoh
- skrudur
- bellastar
- melabraut
- tibet
- griman
- ingabesta
- siggadrofn
- blattafram
- sigrunhuld
- siggiholmar
- imp
- olofdebont
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 94068
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Stubbakallinn greyið littla
Strákur.
Ómar Ingi, 23.10.2008 kl. 18:06
Blessað hundspottið Og já, þetta er stelpa.
Hugarfluga, 23.10.2008 kl. 18:39
þetta er reyndar kattarspott elskan :D
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 23.10.2008 kl. 18:52
Nei, þetta er stelpa!!
djók
Hugarfluga, 23.10.2008 kl. 19:19
ha ha á ég að bæta einum möguleika við í könnunina?
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 23.10.2008 kl. 19:29
Þú eignast litla stelpu, ég er viss um það að þú verður öðruvísi en hinar ólétturnar sem eru með litla tilla...
Aumingjas Stubbur litli..... Afhverju voruði aðissu???
Helga Dóra, 23.10.2008 kl. 19:33
Ég segi að þú komir með skvísu því þá eigum við allar bæði kynin er það ekki töff í dag hehe.
Hafrún Kr., 23.10.2008 kl. 19:46
Ég held strákur!!! :)
Silla (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 20:14
Æ Æ litli kisi. Það er ógeðslega fyndið þegar þessi grey eru að brölta um eftir svæfingar:o) Stelpa
Kristborg Ingibergsdóttir, 23.10.2008 kl. 22:47
Ég er viss um að þetta verði stelpa... :o)
Védís Fönn (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 06:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.