11.12.2008 | 18:33
illt í efni
eða samt eiginlega bara illt í grindinni ... er með endalausa samdrætti líka, vona að þeir hætti þegar prófstressið er búið ... búin með þrjú próf, búið að ganga illa í þeim öllum ... ógeðispróf í ónæmis&meinafræði í dag, ákvað að hætta í skólanum þegar ég kom út úr því ... hætti svo við að hætta og lofaði sjálfri mér eina ferðina enn að taka námið fastari tökum ... er bara ekki í neinum gír þessa önnina ... lyfjafræðin er á mánudaginn, finnst ég ekki þurfa að lesa fyrir hana, hafandi unnið í vörumóttöku í apóteki fyrir nokkrum árum ... en það virkar víst ekki þannig ... ég er ekki eins svöng í dag og í gær ... ég er jafn ástfangin og hamingjusöm í dag og í gær ... ég er svo þakklát fyrir allt sem ég hef öðlast ... finnst ég óttalega vanþakklát að nenna svo ekki að sinna því sem ég á að vera að sinna, eins og náminu til dæmis ... jæja, ætla að lesa lyfjafræði, eins langt og það nær liggjandi í bólinu getandi mig hvergi hreyft ... ef einhver á lítið notaða grind á lausu endilega látið mig vita takk
Um bloggið
ég hef alveg skoðun...
Tenglar
Það er til lausn
Þetta þarf ekki að vera svona erfitt
Bloggvinir
- addahelga
- helgadora
- marilyn
- brussan
- bobbaff
- hafrunkr
- huldalind
- marylinda
- sykurmolinn
- bleiksteik
- marias
- thoradora
- teygjustokk
- supermamma
- drottningar
- jonaa
- hugarfluga
- ellasprella
- baldvinj
- kjarninn
- marra
- asgerdurjoh
- skrudur
- bellastar
- melabraut
- tibet
- griman
- ingabesta
- siggadrofn
- blattafram
- sigrunhuld
- siggiholmar
- imp
- olofdebont
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 94068
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já á ana þú færð ana ekki
Ómar Ingi, 11.12.2008 kl. 18:45
já það sem ég segi það vantar algjörlega varahluti fyrir líkamann.
Ég mydi þyggja nýa grind, hægri fót og bak einhverjir sjálfboðaliðar?
Eða einfaldlega að letiblóðið nenni að fara að koma sér út.
Hafrún Kr., 11.12.2008 kl. 19:18
gætir nú alveg lánað mér hana í 3 mánuði kvikindið þitt ... er þetta af því að ég elska baby sutherland??
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 11.12.2008 kl. 19:19
Mjaðmaaðgerð og blóðskipti... eina sem ég get ráðlagt í þessari stöðu ;)
Gangi þér vel elskan mín
Marilyn, 12.12.2008 kl. 00:18
Ekki gleyma því að þú varst ritari á augnlæknastofu.... Finn til með þér í grindarmálum... Ég var nánast rúmliggjandi í 12 vikur svo að ég er að tengja vel...
Helga Dóra, 12.12.2008 kl. 17:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.