4.1.2009 | 20:56
gaman
fórum í smá verslunarleiðangur í dag eftir að við fórum í sund ... fórum í útilíf en þar var óléttubikini auðvitað ekki á útsölu, tími ekki að borga 8000 kr fyrir það, þó að ég sé næstum komin með rassinn úr buxunum á hinu ... fer bara til Rósu á útsölu og gái hvort hún á brók í stíl við toppinn sem ég keypti í sumar ... eða nota bara þessar næstum rasslausu ... fórum í name it (við hliðina á vero moda) og keyptum slatta af buxum á baby og krúttlegasta heimferðargalla ever ... gleymdum reyndar sokkum, en þegar þeir eru komnir er allt reddí ... en nú verður þetta allt lagt til hliðar, skólinn byrjar á morgun og það er hann sem mun taka allan minn tíma næstu átta vikurnar, en þá verður líka meðgangan næstum búin og ekki annað eftir en að setja í vél og fara svo og spýta krakkanum í heiminn :) ekki meira í bili takk
Um bloggið
ég hef alveg skoðun...
Tenglar
Það er til lausn
Þetta þarf ekki að vera svona erfitt
Bloggvinir
- addahelga
- helgadora
- marilyn
- brussan
- bobbaff
- hafrunkr
- huldalind
- marylinda
- sykurmolinn
- bleiksteik
- marias
- thoradora
- teygjustokk
- supermamma
- drottningar
- jonaa
- hugarfluga
- ellasprella
- baldvinj
- kjarninn
- marra
- asgerdurjoh
- skrudur
- bellastar
- melabraut
- tibet
- griman
- ingabesta
- siggadrofn
- blattafram
- sigrunhuld
- siggiholmar
- imp
- olofdebont
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 94068
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Bíddu vó - ert þú að verða tilbúin með heimferðargalla og ég á ekki einu sinni heimferðargalla? Ætla reyndar að bæta úr því á útsölu í dag.. ekki seinna vænna.
Viltu fá sundbolinn minn lánaðann, hann er rauður og bara alveg ágætur - það er hvort sem er engin sól til að brúnka mann á maganum þessi misserin.
Marilyn, 5.1.2009 kl. 11:13
en Budda ... ert ÞÚ ekki búin að kaupa heimferðagalla, ??? whatt ... ég hélt að þú væri með þetta allt planað út í ystu?? Ef þú heldur að ég komist í baywatch sundbolinn þinn þá vil ég fá hann lánaðan takk :)
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 5.1.2009 kl. 11:21
Ég sé þig alveg hlaupa í rauðum sundbol í Nauthólsvíkinni með flotið undir hendinni og Hasselhoffinn á kantinum.......
Lofjú gæs..... Hlakka til að knús börnin ykkar...
Helga Dóra, 5.1.2009 kl. 12:52
hahaha hasselhoffinn á kantinum - já kannski maður taki 12. á hann bara. Við erum allar Pamela inn við beinið ;)
Já heimferðagallinn góði - keypti hann einmitt líka í Name it - annars verð ég að lýsa yfir miklum vonbrigðum með útsölurnar í kringlunni, varð bara pirruð yfir þessum þykjustu-afsláttum. Nú er ég sem sagt búin að kaupa gallann, og sokkabuxur veit bara ekki hvað ég á að setja utan um greyjið þegar hann fer í bílstólinn af deildinni, það kemur bara í ljós.
Ég held að þú komist pottþétt í baywatch sundbolinn - ég fór í hann á aðfangadag með mína tæpl. 9 mánaða kúlu (og 20 óléttukíló) og bara ekkert mál, finnst hann líka bara nokkuð flottur. Hafðu í huga að hann passaði á mig þegar ég var yfir 100 kg svo hann hefur séð það svartara hehehe.
Marilyn, 5.1.2009 kl. 17:21
BUDDIIIII varstu í sundbol á jólunum????? :)
já ég heyrði einmitt umræðu um platútsölurnar í dag ... ljónheppin að passa ekki í eina einustu flík sem fæst :)
kem og sæki bolinn við fyrsta, hringi á undan mér
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 5.1.2009 kl. 19:55
Beibí ég var í heita pottinum hjá tengdó klukkan 5, það var jólabaðið okkar Margrétar, mjög næs.
Marilyn, 5.1.2009 kl. 22:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.