annað próf á miðvikudaginn

fyrsta prófið var í morgun - 300 atriði rétt&rangt - við skulum spyrja að leikslokum ! ég var ógeðslega þreytt í prófinu, hann Stubbur litli kisi var lasinn í nótt, með niðurgang og æsing fyrir allan aurinn - við vorum frekar vansvefta gömlu hjónin og það var ekki gott veganesti í próf - Stubbur er hressari núna, og vonandi sefur hann í nótt

það var bolludagur á þessu heimili eins og annars staðar, JJ fékk að kaupa sér bollu til að taka með sér í skólann, húsbóndinn keypti sér svo eina þegar hann fór og keypti í matinn - ég gerði mér að góðu saltkjötfarsbollur og kál og smjör nammi namm og ekki skemmdi fyrir að ég notaði smá af grænmetisskammtinum í dísætan sultaðan lauk sem ég átti afgangs og þá var þetta bara alveg eins og það væri sulta með eins og amma bauð alltaf uppá !

ein afskaplega skemmtileg bolludagsminning - þegar ég gekk með JJ var einmitt bolludagur þegar ég var langt gengin - ég tók mig til og bakaði þvílíkan haug af bollum - og gekk vel - nema að ég held að ein platan misheppnaðist eitthvað, þær féllu - ólétta konan náttúrlega tók geðbilað dramakast og grét lengi - ég bara gat ekki séð að ég yrði með nokkru móti hæf móðir, fyrst ég gæti ekki einu sinni bakað bollur skammlaust - tek það fram að þetta var í fyrsta skipti sem ég bakaði vatnsdeigsbollur og 95% af bakstrinum tókst MJÖG vel !!

en ég baka ekki bollur núna, baka bara vandræði og ét kjötbollur - farin að læra


aðframkomin

njé ... ekkert alveg, en samt soltið þreytt - bumban sígur í, ég er nú að verða komin á síðustu metrana og þá má víst alveg vera pínu þreytt ... ég er ekki að kvarta neitt, alls ekki, mér líður mjög vel - er hamingjusöm og mig skortir ekkert ... nema ef væri eina aukaviku til að lesa undir próf (það er reyndar megavika - ættu þá ekki að vera fleiri klst í sólarhringnum??) en það er eitthvað sem ég ber sjálf ábyrgð á og því ekki í boði að vorkenna sér yfir að hafa ekki tekið bækurnar fram fyrr ... ég hlakka rosalega til að klára prófin - hlakka rosalega til þegar barnið kemur í heiminn - hlakka rosalega til að geta andað djúpt - hlakka rosalega til þegar mér fara að finnast matarskammtarnir mínir viðráðanlegir - hlakka rosalega til að kósa mig hérna heima með manninum mínum og börnunum mínum tveimur - ég þarf að hafa mig alla við að halda mig í núinu - en svona þér að segja í algjörum trúnaði finnst mér ég bara hafa verið nokkuð dugleg að halda  mig við líðandi stund í þessari meðgöngu - er allavega hér og nú akkúrat núna ... bla bla bla best að læra meira

að færast nær og nær

Vika 37

  • Barnið mælist nú 34 sm í sethæð og vegur allt að 3,2 kg.
  • Höfuðið er orðið yfir 9 sm að þvermáli.

 37 Week Old Fetus

 

 


aular

hvar eru foreldrar þessara drengja? hvers konar uppeldi fá þeir?
mbl.is Börðu skólabróður með kúbeini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

að læra

og nenni því ekki ... en ekki annað í boði takk

afhverju sef ég ekki bara ?

svaf ekki dúr sl. nótt ... gat lúllað milli sjö og tíu í morgun samt, fór svo í sund og síðan út á bókhlöðu að læra í nokkra klukkutíma ... er núna komin heim, búin að borða kvöldmat og ætla að læra aðeins meira ... finnst ykkur ekki sjúklega spennandi líf sem ég lifi ?? set nýja bumbu, tekin í gær, 36 vikur + 2 dagar

013_795009.jpg


ameríku minningar

fékk góðan gest í heimsókn áðan, konu sem ég hef ekki hitt síðan 1996, við kynntumst 1993 þegar ég var au-pair hjá henni í usa ...  við rifjuðum upp hitt og þetta, áttum langt og gott spjall ... það er nú ekki eins og við hefðum þurft að "catch-up" allan heila tímann síðan, höfum verið í bandi gegnum netið og alltaf fylgst með hvor annarri ... en þetta var ótrúlega gaman

við gömlu hjónin erum búin að gera allt reddí fyrir komu erfingjans, tókum sveiflu hérna í gær, þvoðum barnastöffið og rúttuðum aðeins til, ég er aðeins rólegri, fannst ómögulegt að vera með stanslausa fyrirvaraverki og vera með ekkert reddí ... nú er amk ekkert eftir nema að taka upp rúmið og sækja vögguna og svoleiðis dúllerí, svo ég tek bara hverjum verk fagnandi, veit þá að ég færist nær og nær settu marki, verð samt alveg sátt þó það gerist ekkert "alvöru" fyrr en prófin eru búin ... svo á ég lika eftir að undirbúa mig hvað varðar nesti og svoleiðis ... en er nú ekki að stressa mig neitt mikið a því ... meira síðar


aðeins þrýstingur

hér eru fyrirvaraverkir og þrýstingur í suðurátt ... þess vegna ákváðum við gömlu hjónin að það væri tímabært að henda í nokkrar vélar, það er ekkert vit í því að vera með allt í steik ef krílið myndi ákveða að vera eitthvað fyrr á ferðinni en áætlað er ... ég var hundpirruð í gær, og ákvað með sjálfri mér að það væri vegna þess að ég er í hreiðurgerðarþörf og leyfi mér ekki að láta undan henni ... finnst ykkur ekki góð rök ?? þess vegna er ég núna með krúttlegustu krúttaföt í heimi í vélinni ... en ég er líka að læra, það er ekkert hægt að sleppa því, próf á mánudag eftir viku, búin föstudag 27.feb ... þá get ég líka sett tær upp í loft, sett spólu í tækið og beðið eftir mýslu ... húrra !

aftur ein ...

... vakandi

fór mjög snemma að sofa, enda ekki búin að taka miðdegislúr tvo daga í röð - ímyndið ykkur hvað ég var uppgefin - las einu sinni yfir einhverjar glósur og sofnaði svo ... vaknaði við þennan líka svakalega "night-terror" hjá syni mínum, hann kom organdi út úr herberginu sínu með þvílíkum djöfulgangi að hálfa hefði dugað ... knúsaði hann bara og leiddi hann aftur inn í rúm, hann var auðvitað steinsofandi eins og alltaf þegar þetta gerist ... þetta er ástand sem hann hefur verið að lenda í á köflum í mörg mörg ár, tengist yfirleitt spennuástandi og höfum líka séð þetta ef hann er of mikið í tölvunni ... það er einhver spenna í honum núna sem orsakar þetta (það er ekki tölvan því hann er í straffi !), sossum nóg að vera spenntur yfir, enda miklar breytingar yfirvofandi ...  nema hvað, ég sofnaði svo ekki aftur þegar ég var búin að afgreiða drenginn og þegar karlinn var kominn uppí og sofnaður gafst ég upp og fór fram ... nenni ekki að liggja andvaka ... alveg eins gott að kíkja bara á námsefnið í staðinn ... ég er í nettu stressi eftir skoðunina í dag, eitthvað að hugsa um að barnið fari bara að poppa í heiminn á hverri stundu ... langar mest að fara niður í geymslu og tína til hitt og þetta sem þarf að þvo og svona ... en það er ekki í boði núna, ég verð að nota þessa örfáu daga fram að prófum til að lesa ... hef oft byrjað seint að læra en ... ekki orð um það meir ... allavega er ég alveg á bremsunni hvað varðar hreiðurgerð, veit að ég missi mig alveg ef ég hleypi mér smá af stað í hana ... en núna er mér orðið kalt á tásunum ... held það sé best að fara að skríða uppí rúm og reyna að sofna eitthvað ... ást og fiður


alveg tilbúin

var að koma úr mæðraskoðun - í einu orði sagt er ég fullkomin Grin eða þ.e.a.s. er líkaminn minn fullkominn í meðgöngu - mýsla er búin að skorða sig pikkfasta í grindina og allt er reddí - ég kíkti í gömlu skránna mína og JJ var skorðaður í heilan mánuð fyrir fæðingu þennig að ég er ekkert að stressa mig sossum - en eftir síðasta próf sem er 27.feb má þetta koma mín vegna - en nú ætla ég að fara að læra, einmitt fyrir prófin sko ...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

ég hef alveg skoðun...

Höfundur

Elín Sigríður Grétarsdóttir
Elín Sigríður Grétarsdóttir

er frekar til friðs en hitt

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...avel_894003
  • ...0242
  • ...dsc00286
  • ...026
  • ...012_821512

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband