andlega fjarverandi

ekki svona almennt, heldur bara þegar ég á að vera að læra ... annars alveg á staðnum ... fór og náði í principles til að geta lesið fyrir lyflæknisfræðina, en hún les sig víst ekki sjálf ... það verður kraftaverk ef hún nær þessum prófum frúin ...

annars var ég alveg viss um að ég væri á leiðinni upp á fæðingadeild í gærkvöldi ... var eitthvað voða skrítin, mundi svo að ég er alltaf skrítin og fór bara að sofa ... adios


arfavitlaus

þegar kemur að skipulagningu sjálfrar mín ... hausinn á mér er út og suður, ég er að fara í próf eftir tvær vikur, veit ekki hvar ég á að byrja, hvað ég á að lesa, hvað ég á að leggja áherslu á ... hef engan tíma fyrir þetta rugl, langar bara í mömmó ... fékk tilfelli í gærkvöldi og reyndi að heimta það af manninum mínum að fara með mig í sónar, hlýt bara að ganga með tvö börn, þar sem ég finn fyrir að það er komið höfuð ofan í grind (held ég...hef reyndar ekkert vit á þessu) og get samt ekki andað því að það þrýstir eitthvað á lungu og þind ... ég er örugglega eins og þessi sem hélt hún væri með sjöbura en fékk átta ... ég er grunuð um eitt og fæ tvö ... finnst ykkur það ekki álíka líklegt Errm

fjandinn hafi það ég verð að fara að læra takk


alveg makalaust

finnst mér þegar fólk hér á blogginu slær því fram að hinn og þessi sé veikur á geði ... afsakið en er þetta fólk læknismenntað? ég er það ekki, er ekki greiningaraðili þegar kemur að sjúkdómum eða heilsufari almennt ... er reyndar í hjúkrunarnámi, en er bara á öðru ári og hef þar með ekki nein réttindi til að greina heilsufar eins né neins ... en nóg um það ... mig grunaði nú að stjórinn myndi ekki láta þvinga sig úr stólnum, hann fer ekki fet, ég hef fullt af skoðunum á hans svari til forsætisráðherra, og þessu hafaríi öllu,  en þar sem ég þekki ekki manninn mun ég ekki ráðast á persónu hans ... ég vildi óska þess að hann hefði sagt af sér, en mér varð ekki að ósk minni í þetta skiptið, mér finnst að sjálfstæðismenn hafi á síðustu mánuðum sýnt af sér aðdáunarverða þrautseigju ... ég væri löngu köfnuð af að vera með hausinn á kafi í sandi allan þennan tíma ...
mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

afvelta

ótrúlega södd, borðaði kjúkling og rófur og gulrætur og hveitikím og epli og smjör og mæjónes og drakk appelsín og namm hvað þetta var góður matur ... er í ágætis standi með matinn núna, borða morgunmat fyrir átta, hádegis á slaginu tólf og kvöldmat klukkan sex ... þetta gerir það að verkum að ég er ekki springsödd þegar kemur háttatími og get þá frekar sofið ... annars er ég bara góð, fékk yfirferð yfir 8.og 9. í dag og má taka til starfa við fyrsta tækifæri ... búin að vera dugleg á fundum þessa viku og finn að það gerir mér gott ... ég er gengin 35 vikur í dag og við erum ótrúlega spennt hér á heimilinu, þeir fyrir að fá litla barnið, ég fyrir að komast í gallabuxur ... DJÓÓÓÓKKKKK ... en ég gengst við sjálfri mér og viðurkenni hégómleika minn fúslega, er stundum bara ohhhh hvað ég hlakka til að verða aftur mjó ... annars er ég ótrúlega mjó í dag, vaknaði bara ótrúlega slank með bumbu í morgun ... það gerist ekkert endilega á hverjum degi ... þó að ég viti vel að ég er ekki feit, ég vigtaði mig í gærmorgun og hef þyngst um 15kg á meðgöngunni, sem er held ég bara passlegt ... mér finnst skrítið að upplifa þetta og vera í svona góðri tengingu við sjúkdóminn minn, hausnum á mér er nefnilega alveg sama hvort ég er ólétt eða ekki ... hann öskrar bara "HLUSSA" þegar ég stíg á vigtina og hún sýnir 87kg ... ég er að öðlast meira og meira umburðarlyndi fyrir hausnum mínum og geri ekki annað en að vera bara kærleiksrík og minni sjálfa mig á að einn dag í einu kemur þetta hægt og rólega og að það er alltaf styttra og styttra þangað til ég fæ líkamann minn aftur ... ekki að ég sjái eftir því að lána líkamann minn undir að ganga með barn ... þetta er dásamleg lífsreynsla og mér finnst það algjör forréttindi að fá að vera ófrísk ... ekki meira í bili


allt annað

ég geri allt annað en að læra ... er að mastera kapalinn í tölvunni, horfa á friends, voðalega mikið á facebook, semsagt algjörlega í ruglinu, próf eftir 18 daga og ég bara kem mér ekki að verki ... arrrgh

andvaka

ég sofnaði út frá handlæknisfræðinni, uppúr klukkan tíu í kvöld ... svo vaknaði ég rétt fyrir tólf aftur og þegar ég var búin að bylta mér í klukkutíma gafst ég upp og fór að vola ... það er orðinn stuttur þráðurinn sem snýr að svefn og hvíld ... þannig er nefnilega í pottinn búið að ég get helst ekki legið nema á einni hlið ... þeirri hægri, svona hefur þetta verið í nokkrar vikur og kroppur er orðinn heldur skældur af þessu ... ef ég ligg á bakinu á ég erfitt með andardrátt, því að bumban situr svo hátt og er líka frekar fyrirferðarmikil, að öllu leyti ... ef ég leggst á vinstri fara að heyrast furðuleg hljóð úr vélindanu á mér, einhver loftgangur en ekki beint rop, eitthvað voðalega skrítið, ljósan mín og ein hjúkka sem er með mér í sundi voru að láta sér detta í hug að ég væri þindarslitin, en ég veit ekkert um það, held bara í þá von&vissu að þetta muni lagast þegar barnið kemur ... það er svo sem ekkert skrítið að það gangi mikið á í meltingarveginum á mér, magamálið er töluvert minnkað vegna plássleysis, en á móti kemur að ég er að borða mjög stóra matarskammta til að fóðra erfingjann, svo að þetta er ástand sem mun ekki lagast fyrr en baby er komið í heiminn og þrýstingurinn minnkar ... ég reyni að vera voða skipulögð með matartímana mína, borða morgunmat eldsnemma, hádegis á slaginu tólf og kvöldmat helst ekki seinna en sex, allra síðasta lagi sjö ... var reyndar að borða um hálfátta í kvöld, þar sem ég nennti ekki á fætur sjö í morgun því ég átti ekki að mæta fyrr en tíu í skólann, en auðvitað fæ ég að súpa seyðið af því !

Bumbubúinn er í gríðarlegu stuði, eins og alltaf á nóttunni ... ég vona að sólarhringnum verði snúið við ekki seinna en við fæðingu, þó það skipti ekki nokkru einasta máli, ég ætla nú ekki að fara að gera neinar einustu kröfur á þetta blessaða barn, óska bara þess eins að það verði heilbrigt ... annað skiptir mig engu máli, ég er svo þakklát fyrir að vera ólétt, hlakka svo ótrúlega til að hitta þennan einstakling sem ætlar svo rækilega að snúa lífi okkar foreldranna við ... ji við erum svo spennt, og sama má segja um stóra bróður !

Þó ég sé að kvarta og kveina yfir svefnleysi og einhverjum slíkum smámunum hér, er ég ekki að velta mér upp úr þessu að neinu ráði ... mér finnst ég ekki eiga neitt bágt, margur hefur það verra og ég er ekkert nema þakklát fyrir þá stöðu sem ég er í í dag, fyrir nokkrum árum hefði mér ekki einu sinni dottið í hug að ég ætti eftir að eiga svona gott líf, gott, einfalt og eðlilegt líf ... hver er sinnar gæfu smiður og ég er að uppskera eins og ég hef sáð ... mér finnst ég meira að segja bara vera að uppskera nokkuð ríkulega miðað við það sem ég hef lagt í ... ég er lánsöm og þakklát

latte með röri í pottinum fyrir þann sem nennir að klára að lesa svona langlokur


þriðjudagur

ekkert að gerast ... skóli, sund, læra pínulítið, horfa á sjónku, vond grind, gott geð, bara fínt takk

Sunnudagsmorgunn

og ég er alein á fótum, fyrir utan kattarbjálfann auðvitað, þann yngri, hann er frammi að gera einhvern óskunda ... ég svaf ekki vel, borðaði svo risastóran kvöldmat í gær að ég var eitthvað voðalega þung á mér og stórhvelisleg í nótt ... en máltíðin var þess virði ! við áttum frábæran dag í gær, ég var mætt í Vídalíns upp úr níu og fundurinn heppnaðist afar vel, frábær mæting og virkilega nærandi og góður félagsskapur, boðskapurinn yndislegur og algjör forréttindi að fá að horfa á kraftaverk í framkvæmd ...

strákarnir mínir fóru á skíði og voru í nokkra klukkutíma í bláfjöllum, skíðuðu og skemmtu sér vel saman ... það fer um mig hlýjustraumur þegar ég hugsa um það hvað ég er heppin að mennirnir tveir sem ég elska mest í heiminum, skuli ná svona vel saman og að við séum að ná að fúnkera vel sem fjölskylda,  það er mér ótrúlega mikilvægt að geta loksins treyst annarri fullorðinni manneskju fyrir mér og drengnum, auðvitað hafa amma hans og afi verið yndisleg við okkur alltaf og ég ótrúlega heppin að ramba á þvílíka tengdaforeldra, en það er bara allt annars eðlis heldur en að búa með manni sem er eins heilsteyptur og sannur og hann Gummi minn, vá hvað ég er heppin ...

þetta var nú fullvæmið ... en nú er ég búin að gúffa í mig morgunmatnum (borðaðu hægt og taktu litla bita hahaha) og ætla að skríða upp í aftur, samviskan segir mér að fara að læra, en ég þarf klukkutíma í viðbót ...

gullmoli gærdagsins var að vanda sonur minn ... þeir voru á leiðinni upp í bláfjöll (nb drengurinn var að fara á skíði í 5.skipti held ég) ... og þá sagði hann ... ÉG ER NÚ BARA FÆDDUR SKÍÐAMAÐUR, ÉG HEF ÞAÐ ÖRUGGLEGA FRÁ AFA MÍNUM ...

dúnn og fiður


Rakst á þetta í mogganum

AFMÆLISFUNDUR í tilefni 9 ára
afmælis GSA-samtakanna (Greysheeters
Anonymous) á Íslandi verður
haldinn í Safnaðarheimili Vídalínskirkju
í Garðabæ. á laugardag
frá kl. 10-16. GSA eru 12 sporasamtök
fyrir matarfíkla.
Gestafyrirlesari verður Joel H.
frá Bandaríkjunum, en hann hefur
viðhaldið stöðugu fráhaldi af Gráu
síðunni í 14 ár.

ég ætla að mæta


mið vika

takk elskurnar fyrir öll fallegu orðin, mér þykir vænt um ykkur ...

ég er þreytt í kroppnum, var í langdregnasta fyrirllestri aldarinnar í morgun, fór svo á fund og í sund, bumban stækkar og stækkar, farin að síga í eins og gefur að skilja, en þetta er ekki næstum búið, það eru rúmar sex vikur eftir ... geri örugglega ekkert nema að vaxa þangað til ... auðvitað, annað væri óeðlilegt ... mæðraskoðun á morgun og annað bara eftir bókinni ... set inn bumbu ... takk í dag

003.jpg004_782899.jpg


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

ég hef alveg skoðun...

Höfundur

Elín Sigríður Grétarsdóttir
Elín Sigríður Grétarsdóttir

er frekar til friðs en hitt

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...avel_894003
  • ...0242
  • ...dsc00286
  • ...026
  • ...012_821512

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband