Færsluflokkur: Bloggar
15.12.2007 | 09:47
Laugardagur
ég var að borða dásamlegan morgunmat eftir að hafa sofið eins og engill í nótt, kisi er kominn á stjá, mennirnir sem ég elska sofa enn, í dag stendur til að setja upp hillur og hafa það næs, ég þarf að læra og þessi dagur leggst þvílíkt vel í mig, ég hreinlega elska þessar morgunstundir þegar ég fæ að lesa blað og borða morgunmat og hlusta á þögnina...ég bið ekki um meira...ég elska lífið mitt og er svo innilega þakklát fyrir allt sem ég hef öðlast,fyrir það eitt að vera til friðs og treysta mínum æðri mætti.
Megið þið eiga dásamlegan dag í kærleik og jólaskapi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.12.2007 | 10:04
Föstudagur
og við mæðginin liggjum bara undir sæng að kusa okkur og læra, enda ekki hundi út sigandi og því síður óþekktarormum...ég svaf eins og engill í nótt, var sofnuð um hálfellefu og vaknaði hálfátta, alveg undursamlega vonderfúlt...mál málanna í dag eru heimspekileg forspjallsvísindi...ég er að reyna að temja gleði mína...en ég ætla samt ekki að gleyma að minnast á andlegan jafning gærdagsins...þannig var að ég fór í byko til að kaupa perur sem er ekki í frásögur færandi nema hvað að ég ákvað að kíkja í hilludeildina þar sem sænska búðin klikkaði á hilludótinu fyrir herbergið hans JJ...og hverja hitti ég í hillunum nema hana Ingu mína og dró hana með mér að skoða þetta, nema að þá segir hún bara, heyrðu við Elaine vorum að flytja og erum með hillur sem við þurfum ekki að nota...og það voru akkúrat hillur eins og mig vantaði...þannig að ég brunaði vestureftir til þeirra meðan Elsa var að káfa í hausnum á kærastanum mínum og sótti hillurnar sem eru pööörrrfekkkt og einmitt það sem mig vantar í herbergi drengsins, þannig að í staðinn fyrir tíuþúsund kall + fyrir öllu þarf ég bara að kaupa eitt lítið borð á fimmtánhundruð til að setja undir sjónvarpið...þvílík snilld, fékk líka eina hillu að auki sem ég ætla að setja fyrir ofan sófann í stofunni, hún er hvít og á henni verður bara glingur, dúllerí og slíkt...svo tók ég ákvörðun í gærkvöldi að ég ætla að kaupa mér einhvern jólahlut fyrir jólin, ég hef ekki keypt mér jólastöff (fyrir utan eina og eina seríu) í mörg ár...og ég á það skilið Ástkær ástmaður minn ætlar svo að setja hillurnar upp um helgina, við ætlum til mömmu hans og pabba í kvöld og fá lánað hallamál og með'ðí...Gummi var svo rasandi hissa þegar ég sagði honum að hann þyrfti EKKI að koma með borvélina sína því að ég ætti ALLAR græjur...hún er ekki fædd í gær þessi kona, þó hún sé ungleg ... set inn áróðurslink dagsins hér að neðan ...
http://www.whatacrappypresent.com/
góðar stundir elskurnar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.12.2007 | 12:55
80%
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2007 | 02:14
sjö mínútur yfir tvö
og ég er að fara í sálfræðipróf klukkan níu...veðrið er svo kolvitlaust að það leikur allt á reiðiskjálfi, ég nenni ekki að fara frammúr til að athuga hvort kápan er fokin af grillinu, því ég er svo hrædd um að ég fari að rjúka út á nærbrókinni til að sækja grillið...sem myndi enda í eftirfarandi mynd: ég á nærbrókinni og stígvélum af JJ á svölunum (sem eru eins og sundlaug því niðurfallið er bilað) búin að læsa mig úti (hefur gerst) og alveg að pissa í mig i þokkabót örugglega...
allavega er ég andvaka og skíthrædd í þessu veðri, ég er ekki mikill bógur þegar kemur að svona rosalegu roki, er alveg eins að bíða eftir að glugginn smallist og ég liggi í rigningu og glerbrotum... pessimistic much??
eníhú...ég er ágætlega undirbúin fyrir þetta próf, en ég er ekki tilbúin að vaka í nótt og vera algjörlega ósofin þegar á hólminn er komið, ég fúnkera vægast sagt illa þegar ég fæ ekki minn bjútíblund... en núna ætla ég að fara fram og pissa, verra að vera hlandblaut í ofanálag þegar björgunarsveitastrákarnir grafa mig undan glerbrotunum...góðar stundir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.12.2007 | 11:54
60%
hef ekki áhuga á að ræða líffærafræðiprófið og málið er dautt.
næst er sálfræði, sem ég hreinlega þoli ekki...en eins og margar af mínum skoðunum er það óþol byggt á fordómum (að dæma fyrirfram), alhæfingu (þoooli ekki eina sálfræðikennarann sem ég hef haft) og einhverjum hlutum sem ég hef heyrt um hugræna atferlismeðferð... ætla samt að læra og leggja mig fram við þetta próf...það er ekki annað í boði, því að eins og alþjóð veit, hafa mínar skoðanir ekkert með framgang kennslu í háskóla íslands að gera...sem betur fer, því þá væri kennt að rífa kjaft og líta stórt á sig hehe...jæja ég er í ruglinu, ætla að borða og læra...góðar stundir
já og eitt að lokum, við hjónaleysin erum að hugsa um að skella okkur í nokkra ljósatíma fyrir jólin, það þarfekki einu sinni að kveikja ljós til að lesa á kvöldin, við erum bæði sjálflýsandi...og í tilefni af því...
http://youtube.com/watch?v=DvKcttmBUfY
ó mér brá svo mikið
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.12.2007 | 12:08
40%
efnafræði í morgun, gekk bara vel
þreytt, svöng, ætla að borða og læra
bless
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.12.2007 | 13:51
20%


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.12.2007 | 18:33
daaaaaajöööövvvvvuuuuulllllllll
er ég búin að vera dugleg...
ég var að tala við vinkonu mína í morgun og var einmitt að segja að ég væri búin að taka þann pólinn í hæðina vera ekkert að stressa mig á þessum prófum, þau koma og fara og hvað það varðar skiptir ekki nokkru einasta máli hversu vel ég er undirbúin...og svo sá ég stjörnuspána mína á mbl....
Fiskar: Það er auðvelt að verða taugatrekkur yfir spennandi atburðum, sérstaklega þegar þeir skipta þig máli. Allt fer á sama veg hvort sem þú stressar þig eða ekki. Slepptu því.
Hallelúja !! ég er nebblega búin að ákveða að lifa mínu lífi eftir moggastjörnuspánni (að sjálfsögðu bara þegar hún er góð og mér í hag, nema hvað ) Það er líka svo gaman að síðustu vikur er búið að minnast mjög oft á meyjur í minni spá (og þá er ég ekki að meina meyjur as in virgins, ég hefði nú lítið að gera við það) og kærastinn minn er einmitt meyja, sú fyrsta sem ég kynnist á ævinni
og hvað með það?? farin að læra, verið margberrössuð í bili
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2007 | 15:58
föstudagur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2007 | 07:45
fyrr var oft í koti kátt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
ég hef alveg skoðun...
Tenglar
Það er til lausn
Þetta þarf ekki að vera svona erfitt
Bloggvinir
-
addahelga
-
helgadora
-
marilyn
-
brussan
-
bobbaff
-
hafrunkr
-
huldalind
-
marylinda
-
sykurmolinn
-
bleiksteik
-
marias
-
thoradora
-
teygjustokk
-
supermamma
-
drottningar
-
jonaa
-
hugarfluga
-
ellasprella
-
baldvinj
-
kjarninn
-
marra
-
asgerdurjoh
-
skrudur
-
bellastar
-
melabraut
-
tibet
-
griman
-
ingabesta
-
siggadrofn
-
blattafram
-
sigrunhuld
-
siggiholmar
-
imp
-
olofdebont
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar